I <3 U

I <3 U

19.02.2008 16:01:26 / fskula

NÝ SÍÐA


ER KOMIN MEÐ NÝJA SÍÐU ÞVÍ ÉG GET EKKI BREYTT ÞESSARI

WWW.FANNEY89.CENTRAL.IS

ADIOS


ég


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 13:25:32 / fskula

DRASL

 
e3072e24.jpg

Vá eruði að grínast með þetta nýja kerfi,, ég skil ekki rass í bala í þessu
og ég kemst ekki inn í "uppsetning" þar sem ég á víst að geta breytt öllu,, eru fleiri sem komast ekki inn á það?

allavega þá eru miðannarprófin að byrja næsta fimmtudag. ég ætlaði að byrja að læra í dag, en nei, ég kemst þá ekki inn á fnv síðuna til að ná í allar glósurnar. vá ég er að verða geðveik á þessu interneti hér á íslandi, það sökkar

ég er hætt að vera bitur og leiðileg.
það eru bara 2 kennsluvikur eftir fyrir páskafrí og svo þegar páskafríið er búið þá er bara kominn apríl jeijj. árshátíðin er 29. febrúar, páll óskar á barnum og víst rosa stuð, aldrei að vita nema maður fari, er samt ekki að treysta stiganum þarna þar sem maður neyðist til að fara upp hann því þar eru klósettin og ég veit um fullt af fólki bæði fullu og edrú sem hafa dottið niður hann. ójá

en jæja, er farin að bóna nýja kaggann sem við vorum að kaupa :]
adios

PS: var að setja nýjar myndir inn í "myndasöfn" hér til hliðar :]


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 19:35:42 / fskula

get down tonight

wow hvað allt er fljótt að líða
það er kominn febrúar
sem gerir það að verkum að það eru bara 2 mánuðir í apríl
sem gerir það að verkum að ég verð mamma eftir 2 mánuði
þetta er of spennandi

skólinn er á fullu.
ég er að reyna að læra eins og vitleysingur því það eru bara 2 kennsluvikur eftir fyrir miðannarprófin, úff önnin alveg að verða hálfnuð!
það gleður mig samt svo mikið, get ekki beðið eftir að verða stúdent.

við drottningarnar erum búnar að vera að meikaða í félagslífinu og þar á meðal þungaða drollan ég,, ég er líka duglegust að koma með fyrsta erfingja drottninganna, hvet stelpurnar til að gera það sama hehehe ;] handboltamótið var að meikaða, eða réttara sagt vorum við að meikaða á handboltamótinu. unnum pizzahlaðborð fyrir bestu búningana ;] var að skella inn fleiri myndum frá mótinu.

en jæja,, ég kveð að sinni
-fanney


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 14:21:59 / fskula

eeey..

 

Tími á nýja færslu á nýju ári.. er það ekki

Það er margt búið að gerast hjá mér, jólafríið var best í heimi þar sem ég lá í leti í nærrum allt fríið og svaf og svaf.

Nýtt ár komið og ég er byrjuð aftur í skólanum. Seinasta önnin, úff það er samt mikið að gera! Er samt bara í 22 einingum þannig það er fínt.

Ég og stúlli erum flutt inn í íbúðina. Það er mjög kósý, miklu skárra en á vistinni sem var hreint helvíti. En núna þarf ég að elda sem er ekkert gaman þegar maður er uppiskroppa með hugmyndir af því hvað á að hafa í matinn. Fékk samt glæsilega matreiðslubók í innflutningsgjöf frá ásdísi og elsu ;]

Kúlan stækkar og stækkar,, það er gaman.
bara 3 mánuðir eftir :]

Var að fá mér neglur í gær, það er mjöög töff, hef alltaf verið með svo miklar vinnumannshendur hehe..

nú er nóg að gera hjá drottningunum, söngvakeppnin er framundan og erum við á fullu að skipuleggja það ásamt öðrum viðburðum t.d. íþróttamót og árshátíðina.. það verður gaman :]

en jæja hef ekki mikið að segja,,
nenni ekki að slúðra þar sem ég er hætt að fara á djammið
l8er :]

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 17:01:32 / fskula

2007

 

Árið 2007

hefurðu átt gott ár?
þetta er búið að vera æææðislegt ár !

hvað hefur verið þitt stærsta afrek?
úff, bara rústa skólanum með stæl held ég

tekið eitthver próf, náð?
búin að taka örugglega 50 próf og hef náð þeim öllum ;]

búin að eiga afmæli?
já átti afmæli 8. september og það var brjálað grímubúningapartý

verið í fríi, farið í ferðalög?
jájájá ! alveg endalaust!!

hvert, hvenær?
fór á hróaskeldu og svo allskonar útileigur á íslandi

keypt eitthvað dýrt?
já flugmiða og hróaskeldumiðann

verið í vinnu?
já vann í vegagerðinni

tekið stórar ákvarðanir?
já !

misst vin eða einhvern annan nákominn?
já seinustu áramót :[

hitt einhvern æðislegan?
yes beibí :]

eignast nýja vini?
já maður er alltaf að kynnast nýju fólki

flutt?
heyrðu bara til og frá vistinni

skipt um skóla?
nei, er að klára skólann í vor :]

prófað eitthvað nýtt?
heyrðu maður er alltaf að prófa eitthvað

verið meira glöð en döpur?
miklu meira glöð, er ekki döpur manneskja

eignast óvini?
já ég gæti vel trúað því

hvaða tónlist mun minna þig á þetta ár?
hróaskeldutónlistin !!!

hvaða myndir hefurðu séð í bíó þetta ár?
uu örugglega 2 eða eitthvað

hvaða kvöld var það besta?
það er nú bara ekki hægt að telja það upp !! fullt af geggjuðum kvöldum

en það versta?
uu þau hafa verið nokkur slæm

besti dagur?
úff bara endalaust margir dagar

versti dagur?
dunno

besti mánuður?
heyrðu það var allt sumarið !!

versti mánuður?
ætli það hafi ekki verið nóvember þegar leikritið var á fullu og brjálað að gera fyrir lokaprófin!

var sumarið skemmtilegt?
ÞAÐ VAR GEGGJAÐ !!!! besta sumar sem ég hef upplifað

þú og einhver annar orðnir betri vinir?
já svo sannarlega

misst einhverja vini?
nei maður hefur samt kannski fjarlægst einhverja

hversu marga hefurðu kysst þetta árið?
það er bannað að spurja svona spurningar

lentiru í ástarsorg?
nei sem betur fer ekki :]

búin að gera einhver plön fyrir árið 2008?
heyrðu já klára skólann í vor, eignast barn, fara í ferðalag, og vera í fríi :)

hversu marga háraliti hefurðu haft þetta ár?
uu ljósbrúnan, ljósan, rauðbrúnan og dökkbrúnan

fengið þér göt?
já fékk mér gat í tunguna

tattú?
 já fékk mér tattoo á ristina

breytt ímynd þinni?
heyrðu já hætti að vera djammari og varð dugleg í skólanum

saknað einhvers?
JÁ!

veistu hvað þú vilt í framtíðinni?
já ætla í lögfræði í HÍ haust '09, eiga góða fjölskyldu og vera í góðri vinnu

sérðu eftir einhverju?
já það hefur maður gert !


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 23:14:04 / fskula

its christmas time

 

jóla hvað

hæ aftur.
ég er komin í jólafrí.
ég er búin að fá einkunnir.
ég er búin að kaupa jólagjafir.

jólaörtröðin þarna fyrir sunnan er nú ekki eðlileg. fór á sunnudagskvöldi og hélt það yrði rólegt í stórverslununum á mánudagsmorgninum en auðvitað ekki, hefur aldrei verið jafn mikið af fólki og akkurat þá. jæja maður verður að láta sig hafa það að rekast á hvern sem maður labbar framhjá. en ég náði þrátt fyrir það að kaupa allar jólagjafirnar sem ég ætla að gefa. veðrið þarna var líka alveg út í hött. en nenni ekki að tala um það.

loksins komin í jólafríið. aðeins ein önn eftir af blessaða framhaldsskólanum. þetta líður rosalega hratt en ég er nú samt mjög fegin að þetta sé að klárast. 3 ár, já bara nokkuð góður árangur og er ég mjög stolt af sjálfri mér. núna búin að klára 118 einingar og aðeins 22 eftir :] ég var nú bara nokkuð sátt með einkunnirnar í haust en þær voru svona:

enska 503 - 8
íslenska 503 - 8
saga 203 - 8
sálfræði 103 - 8
uppeldisfræði 203 - 8
íþróttir 4L24 - 8
náttúrufræði 113 - 7
franska 303 - 7

já markmiðinu að fá ekki lægra en 7 var náð. ég bjóst þó ekki við svona ágætum einkunum og er því bara mjög sátt. ætla mér að fá ennþá betri einkunnir næsta vor þrátt fyrir að það gæti verið nokkuð erfitt.

annars vil ég óska öllum gleðilegra jóla og ég vona að allir hafi það gott yfir hátíðarnar :]

jólakveðja
fanney :*


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 16:32:38 / fskula

make my wish come true

 

jæja þá er kominn desember

ég ákvað að opna síðuna aftur öðrum til skemmtunar og svo sé ég til hvað ég geri eftir áramót :]


skelli einni mynd af mér og bylgju á hróaskeldu ;]


prófin eru byrjuð á fullu! ég er strax búin í fjórum prófum. íslensku, frönsku uppeldisfræði og sálfræði. eftir frönskuprófið gáfum ég og ása eric jólakort og meirasegja á frönsku !! hann var ekkert smá ánægður og kyssti okkur á kinnina haha. enskan er svo á föstudaginn. úff kvíði fyrir henni, á eftir að lesa heilar 3 bækur, taka upp fyrilestur á geisladisk sem verður eitthvað skrautlegt því ég á ekkert upptökutæki og svo gera 14 vikna dagbók!

 friðrik og sandra eru komin heim. svo ætlar halli að fara með þeim út til svíþjóðar 17. desember og koma svo aftur heim í maí vonandi :]

vá það er bara 1 önn eftir af skólanum ! 1 önn þangað til ég verð stúdent :]]
GET EKKI BEÐIÐ!!!
haustið eftir það kemur svo arftakinn minn í skólanum, júlía systir ;*


en jæja, sorry með myndirnar úr lokapartýinu, reyni að setja þær ásamt nýju slúðri inná síðuna um helgina :] þarf að byrja að lesa.. bleble

***

var að skoða eldgamla síðu síðan ég var busi, já þetta var skemmtilegt slúður,, smá sýnishorn, hver man ekki eftir legkökusíðunni?? ;D

  • Hundurinn hennar Fanneyjar var á túr yfir jólinn og fjölskyldan hennar Freydísar gaf honum tíðarbuxur í jólagjöf sem komu sér einkar vel.
  • Fanney sást í faðmi norðlensks drengs á balli 2. des. talið er að þau hafi mögulega skipst á munnvatni og ekki er vitað hvað gerðist í framhaldi af því
  • Íris lenti í hörkuslagsmálum á umtöluðu balli
  • Fanney var að skíta í sig og ældi eftir ballið í bílinn hans inga
  • Freydís var mjög sniðug á leiðinni heim því hún fór með hausinn út um topplúguna hjá Inga og missti hárkolluna sína
  • Freydís notar hárkollu, hún er í alvöru sköllótt


HRÓASKELDA VAR BEST !!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 15:56:29 / fskula

im fanneylicious


 

gulli, ása og ég ;; TÍNSUPÓS!

jæja þá erum við byrjuð að sýna þetta blessaða leikrit
hefur gengið alveg frábærlega, fyrir utan frumsýninguna þar sem rafmagnið og draugurinn í ljósunum voru að hrella okkur, það hætti ekki að slá út.
kom fyrir að leikarar væru að syngja ljóslaus á sviðinu !

frumsýningapartýið var geggjað! allir í geðveikt gúddí fíling og ég skemmti mér rosalega vel, dansaði mikið og spjallaði mikið! ég fór með myndavélina og aron már var svo góður að taka myndir fyrir mig því ég er hræðilega léleg í því!

það eru bara tvær vikur eftir í kennslu fyrir jólapróf !! það er hræðilegt þar sem ég hef ekki litið í bók eftir miðannarprófin vegna leikritsins. en ég verð að krossleggja fingur og þá sérstaklega í íslenskunni og enskunni því ég á eftir að lesa samtals 5 bækur fyrir prófin í þeim áföngum! og ekki léttar bækur :-0

barinn á laugardaginn var géééggjaður! það voru einhverjri DJ-ar að meika það með geggjaða tónlist og ljósashow! langt síðan það var svona rosaleg stemming þarna á barnum og langt síðan maður hefur séð svona troðfullan barinn ;]

en jæja þá er það bara lærdómurinn -- bleee

PS: nokkrar myndir úr frumsýningapartýinu sem ég fékk hjá öðrum :]


við á gelluborðinu og ég eins og snobbuð kona


ég og dabbi han að fara í sleik


ég að sýna snævari hössl múvið mitt

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 10:18:52 / fskula

spice up your life

 

ég gifti mig um helgina
fór á blindafyllerí niðrí bæ, inní kapellu fyrir fyllibyttur þar sem þær geta gift sig.
þar mætti ég ásu og leynikærastanum hennar, nari skvís
þau voru nýgift

 

helgin var annars good shi* (PÍP)

peningurinn er horfinn, ég eyddi svo miklu!
ég & stúlli fórum til keflavíkur í heimsókn til mömmu hans.
hún átti geðveikt sætan rottweiler hvolp sem við máttum eiga
stúlli var meira skotin í honum en mér !

svo daginn eftir fórum við í brúðkaup hjá pabba hans
það var mjög gaman, veislan var mjög flott
svo fórum við heim að horfa á sýrða mynd

ég keypti fullt af fötum fyrir sunnan
og margt ýmislegt í íbúðina sem við flytjum í eftir áramót

JEIJ önnin er að klárast ! mánuður eftir af skólanum
VIKA í frumsýningu, svo verður frumsýningarpartý sem verður glatað af því ég aðal partý-dýrið verður edrú.

svo eftir áramót þá verður gaman.
seinasta önnin hjá mér og stúlla í skólanum
síðan verðum við stúdent bíatses
víííí

Aug 28, 2007
omg við í sumar á hvammstanga!


júlía systir er beib ársins 2007

image
ég og íris í frumsýningapartýinu í fyrra !


GOD BLESS US

(ps. einhver úr nemó gerði ljótt á fatlaðaklóstinu)
 


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 20:33:48 / fskula

 

Halló Halló

   

ég held að kennararnir ætli að láta mann fá taugaáfall fyrr en síðar! var að komast að því að ég á eftir að lesa heilar 5 lesbækur fyrir jólapróf, klára stórt verkefni í sögu fyrir þriðjudaginn og gera 13 blaðsíðna ritgerð í náttúrufræði 113 !

en annars er ég mjög fegin að önninni fer að ljúka. er orðin mjög leið á því að vera hérna á vistinni og hvað þá alein! stúlli kemur nú eftir áramót til mín og planið er að vera ekki á vistinni! ég er ekki að meika öskrin og lætin á göngunum í þessum busum. maturinn er líka vondur.

ég er komin í svo mikið jólaskap ! ég og stúlli erum að fara suður 2-4 nóv. erum að fara í brúðkaup til pabba hans og svo auðvitað versla og versla og komast í meira jólaskap, kaupa jólagjafir, það verður gaman ;D

annars er bara allt mjög gott að frétta af mér er bara mjög hress og hef það very good :] sjáumst síðar

Hvað finnst ykkur?

svarthærð?

rauðhærð?

ljósbrúnhærð?


ljóshærð?

 


» 24 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 22:34:08 / fskula

F R I E N D S

Langaði að koma með smá pælingar sem ég hef verið að spá í undanfarið!

Hvað er það sem fær fólk til að tala illa um vini sína?
Hvernig hefur fólk það á samviskunni að baktala eða rakka niður vini sína fyrir framan aðra?
Hvaða vandamál á fólk við að stríða sem gerir svona lagað?

Þetta eru dæmi um það sem ég hef verið að spá í, en ég get ekki fengið nein svör við því afþví ég tala aldrei illa um vini mína eða kunningja! Mér finnst manneskjur sem gera það ógeðslega ómerkilegar!

Vinir eru eitthvað sem eiga að vera til staðar fyrir hvorn annan þegar eitthvað er að. Vinir eiga að styðja við bakið á hvorum öðrum. Vinir eiga að geta treyst hvor öðrum án þess að hafa áhyggjur af því að hinn aðilinn segi frá leyndarmálum sínum. Vinir tala ekki illa um hvorn annan eða gera lítið úr hvor öðrum.

Ég hef komist að því að nokkrir af þeim sem ég taldi vera sanna vini eru það ekki! Baktal? Erum við komin í 8.bekk aftur? Fólk sem er komið í framhaldsskóla á að vita hvað er rétt & rangt! Ég treysti aðeins sönnum vinum og eru þeir fáir. Ég hef séð í gegnum alltof marga. Og tel ég þá sem eru ekki mínir sönnu vinir aðeins vera kunningja. Ég veit að mínir sönnu vinir eiga eftir að vera vinir mínir það sem eftir er ævinnar!

Hvað finnst ykkur? Hafið þið lent í því að þið teljið ykkur eiga góða vini sem þið fréttið seinna að hafi verið að rakka ykkur niður fyrir framan annað fólk og tala illa um ykkur? Kannski einhverjir gætu komið með svör við spurningunum ofar í færslunni?
Eruð þið sannir vinir?


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 22:08:59 / fskula

próóóf

omg nýr mánuður kominn!
einn mánuður í frumsýningu!
tveir mánuður í jólapróf!
þrír mánuðir í nýtt ár !!

jæja það hefur mikið gengið á hjá mér.
miðannarprófin eru að byrja og leggst það frekar illa í mig þar sem ég er í ÞREM prófum næsta föstudag og ekki bætir það að ég var í prófi í dag og svo fer ég líka í könnun á fimmtudaginn! þessir kennarar eru alveg ótrúlegir að skella öllum verkefnum og könnunum seinustu vikuna fyrir próf, og hvað þá þegar það er prófadagur í þessari viku !!! ;[

ég og stúlli fórum á tangann á föstudaginn. kvöldið endaði þannig að ég steindrapst um klukkan ellefu á meðan pabbi og stúlló tæmdu vínskápinn heima! daginn eftir var vaknað svona eldhress og farið í skírn hjá litlu frænku sem var skírð Katla Ísold :* um kvöldið var svo brunað á krókinn.

laufskálaréttaballið var líka seinustu helgi. það var leiðinlegt. alltof mikið af fólki og maður eyddi öllum tímanum í að leita af manneskjunni sem maður hafði týnt í byrjun ballsins. ég býst ekki við því að mæta á fleiri laufskálaréttaböll og hvað þá þegar það kostar tvö og fimm kall á það! ég og stúlli fórum bara snemma heim, fengum okkur samt smá blund í  bílnum en vöknuðum við það að einhver eldgamall og blindfullur kall var að sparka í bílinn, what an asshole !

ég er búin að lita á mér hárið, entist nú bara heillengi sem blondína eða í 10 mánuði! það er eitthvað nýtt með mig og háraliti. en ég er núna orðin brún-rauðhærð. gerði þetta reyndar því ég ætla að láta alla liti vaxa úr hárinu á mér og byrja uppá nýtt. hárið ekki alveg nógu sátt með að hafa verið litað svona oft. vildi frekar hafa brúnt hár meðan hárið er að vaxa heldur en að hafa hálft hárið ljóst og hinn helminginn brúnan ! það væri hot. NOT!

en annars smá könnun, ætla einhverjir á palla um helgina? ;]


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 13:17:00 / fskula

antm omg

yello everybody

nú fer að styttast í prófin, eða það er víst bara ein vika þangað til þau byrja. ótrúlegt ! skólinn er ný byrjaður og önnin er strax hálfnuð! sem betur fer líður þetta svona hratt, er að fá algjört ógeð á að vera í þessum skóla ennþá.

eftir að ég varð sjálfráða hef ég ekki verið að bardúsa mikið, fór í réttir um daginn sem var mjög gaman, elska að komast í sveitina. seinustu helgi fór ég á siglufjörð og hafði það rólegt og svo núna um helgina er ég að fara í skírn hjá litlu frænku og svo auðvitað á laufskálaréttaball :]

leikæfingar eru byrjaðar á fullu og fékk ég hlutverk sem pink ladie wáwáwúwa ! þetta á eftir að verða rosalega flott sýning! mæli með að fólk komi :]

svo er metakvöldið á morgun og menningakvöldið bráðlega þar sem ég ætla að vera máluð í bodypaint sem eitthvað freak og er búið að mana mig upp í að vera alls nakin og á ég að fá vegleg verðlaun fyrir það, er ennþá að hugsa málið.

en annars, slúður og myndir eftir helgi.. íha


þetta eru mestu krútt í heimi ;**
ísak, emma og litla :]


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 09:13:19 / fskula

dont you bring me down today

 

jæja ætli það sé ekki kominn tími á nýja færslu :]

seinustu helgi var haldið feitt grímubúningapartý heima hjá katrínu beib, við afmælisbörnin ákváðum að safna liði saman í grímubúningum á barinn en svo beiluðu víst allir að fara þannig nema teitur batman ! þetta var samt fjööör ;]

 
ég superman & elsa spiderman ;D

skólinn er svo byrjaður á fullu. svo er ég að fara í réttir á morgun, vona bara að veðrið verði ekki eins slæmt og í gær ! haglél, brjálaður vindur og rigning! veturinn nálgást...

ég & katrín kíkkuðum á barinn í gær, fullt af fólki og ingi vinur ómars elti katrínu út um allt og sagðist vera ástfanginn af henni hahah lame maður !!! ;-o

ég verð víst sveitadurgur þessa helgi, hlakka samt til,, elska að vera í sveitinni ;þ
en have a nice weekend ;** cya

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 22:15:50 / fskula

hold you

    

* jójó busavikan búin & ég er edrú og hætt að reykja vííí *


hehe góðar, sunna - hanna & ég
 

haha ekki að ég hafi farið í meðferð eða eitthvað svoleiðis bara í smá drykkjupásu, aðallega til að ég gæti hætt að reykja annars hefði það aldrei tekist ;]

en þetta var svosem ágæt busavika. ekki jafn brjáluð og í fyrra, en held að yngri krakkarnir hafi séð um það. blóðþyrstu pöndurnar voru málið á busadeginum og busarnir voru glaaataðir! fyrir utan hönnu hún hlýddi held ég öllu sem við létum hana gera! en annars voru þarna nokkrar tínsur sem voru alltaf að stíga út fyrir línuna og voru bara yfir öllum þarna haha þær fengu allavega að kenna á því í busavígslunni!! bújú aumingjar.

busaballið var weeeird,, fyrsta skipti sem ég mæti á ball edrú á ævi minni! en ég skemmti mér ágætlega eða reyndar bara þegar DJ-inn var að spila, hljómsveitin var ekki góð. Stúlli beibí kom í heimsókn til mín, það var gott að fá hann búin að sakna hans svo mikið :*

svo næstu helgi á ég afmæli, það verður gaman :]
en allir, takk fyrir góða helgi & viku ;**


» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5