I <3 U

I <3 U

27.04.2007 20:37:52 / fskula

i cant forgive myself for the way i treated you

[you were my everything & I really miss you]

það eru allir að verða svo gamlir. drollurnar langflestar orðnar 18 ára & karlmennirnir, jesúss.. allir komnir á þrítugsaldurinn. áður en maður veit af verða vængefnir krakkar hlaupandi um allt húsið manns með brjáluð læti. en það er ekki á dagskránni hjá mér, ég læt supernanny ala upp skrattana sem spýtast úr mér. kem ekki nálægt satanískum börnum.

dimmiteringin var á miðvikudaginn. alltaf jafn skrautlegt að sjá þetta lið, nema ég missti af því núna því ég svaf til 1 um hádegið. en það var gert eitthvað af sér um kvöldið. ómar driver fyrir mig, ásdísi, stúlla & svo var gústi edrú með :] en við brösuðum margt skemmtilegt. svo þegar við fórum heim þá var sko læst herberginu & stúlli var með fötu fulla af vatni til að skvetta á þetta fjandans lið :] hata þegar það kemur & liggur við að það brjóti hurðina! ég var alveg viss um að mín myndi detta af! var reyndar búin að lofa árna & óla að opna fyrir þeim... eeen geri það bara næst ;]

ball & söngvakeppni á tanganum á morgun. það verður eitthvað skrautlegt :] kvet samt alla til að mæta, það verður stuð ;] með gamla skarfanum honum geirmundi.


-fanney


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 10:09:49 / fskula

the fruit

 

its the phunk phunk phunk

 

sumardagurinn fyrsti
tekið á því heima hjá steinunni drollu

föstudagurinn langi
edrú driver
ljótar tínsur
fallegar drollur
"WHAT EVER !!!!!!"
[hleyp út í bíl]

laugardagurinn
borgin
versla, versla, versla
skór, skór, skór

sunnudagurinn heilagi
ferming
tekin af securitasmanni
& það var arnar þór
blingbling í kjaftinum
allavega ekki sýklar í kjaftinum!

PS. tannburstinn minn er góður á bragðið


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 19:16:28 / fskula

í sálu þinni finndu frið

ég fékk nú helvíti skemmtilegt símtal hérna um daginn. í því var mér sagt að ég hefði fengið bíl að gjöf í tilefni sérstaks dags og var það ekki nema glænýr toyota yaris - 2007 árgerð! þarna sjáið þið hann á hlaðinu heima bíðandi eftir að ég komi og nái í hann.

já það var nú bara sæmileg helgi hérna á króknum. ball á barnum með von. ég hef nú farið á skemmtilegri böll, fannst eigilega skemmtilegra heima hjá ísaki heldur en á ballinu. en maður dansaði til að gleyma & ég tók ekki eftir neinu sem gerðist þarna. á föstudaginn náði ég í rúnar á flugrútuna og síðan kíkkuðum ég & beibin til ella & svo til ísaks. jájá eftirpartýið var búið klukkan 2 daginn eftir & þá þurfti ég að drífa mig á vistina til að ná rútunni á akureyri ;]

söngvakeppnin var í gær. ég & hulda fórum í verslunarleiðangur og var eitt nálægt 60 þús kjelli í föt og fleira, allt meira segja á akureyri ;o hittum marga á vegi okkar og þar á meðal sigga sófa. hann var kominn með flotta pönkaragreiðslu! ég fór heim strax eftir söngvakeppnina, var ekki að meikaða að vera vakandi svona lengi, þannig ég fór beint á vistina og steinrotaðist.

eins og flestir taka eftir þá er ég byrjuð með slúðurdálk. ég ætla ekki að taka neina ábyrgð á því hvort það sem ég skrifa sé satt eða ósatt, þetta eru bara orðin á götunni og það veður ekkert tekið þaðan út :] sumir ekki alveg sáttir en sorry elskurnar, ekki mitt vandamál ;*


fanney&júlía

-takk fyrir mig 


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 17:09:42 / fskula

god's gonna cut you down

 

i hurt myself today
to see if i still feel
i focus on the pain
the only thing thats real
the needle tears a hole
the old familiar sting
try to kill it all away
but i remember everything


if i could start again
a million miles away
i would keep myself
i would find a way

 

 

 

 

 

 

 

 

jamjam.. góð páskaböll hér á ferð. sé ekki eftir því að hafa farið á blönduós, en það var ekki á planinu að fara þangað. margir spjölluðu við erkióvini sína & þar á meðal harpa sem hafði engann áhuga á að tala við mig á meðan ;D en það var dansað sólana af skónum.

seinasta fimmtudag var hestapartý. þau eru auðvitað best því hestafólk er fólk sem kann sko að skemmta sér. við byrjuðum á því að ríða til sigrúnar&sverris og stoppuðum þar smá. svo var farið til baka & partý í húsinu hans dóra, grill & fyllerí.

næst á dagskránni er bara ball á barnum með von & einhver skólaheimsókn frá krökkum úr keflavík. ég held við eigum eftir að lenda í hópslagsmálum þetta er svo klikkað lið. svo er söngvakeppni framhaldsskólanna, kannski maður fari, er ekki viss!

fanney - im gonna cut you down!


» 6 hafa sagt sína skoðun